Áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað

Vinnueftirlitið hefur óskað eftir að tannlæknastofur hafi tiltæka áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað.

Samkvæmt lögum bera atvinnurekendur ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað án tillits til stærðar hans.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Vinnueftirlitsins (sjá hnapp).

Sniðmát fyrir tannlæknastofur

Til að auðvelda tannlæknum vinnuna hefur Tannlæknafélag Íslands fengið Örugg verkfræðistofu til að útbúa sniðmát og leiðbeiningar fyrir áætlun um öryggi og heilbrigði.

Skjöl til að hlaða niður:

  1. Leiðbeiningar fyrir áætlun um öryggi og heilbrigði
  2. Áhættumat
  3. Efnaáhættumat
  4. Áætlun um öryggi og heilbrigði

Upptalningin er ekki tæmandi og því velkomið að bæta við listann yfir efnaáhættumat. Með því að smella á hlekkinn hér að neðan opnast excelskjal þar sem þú getur bætt þeim efnum sem þú notar en eru ekki á listanum.

Booth shelving with bookbinded books on glass shelves. Slightly soft focus.

Námskeið

Vefnámskeið var haldið 20. janúar 2026. Hér má finna glærur af námskeiðinu: Ná í glærur

Vefnámskeiðið var tekið upp til að hægt væri að horfa á það síðar. Með því að smella á hnappinn er hægt að skrá sig og horfa á námskeiðið.