Persónuvernd
Ný persónuverndarlöggjöf var lögfest árið 2018. Frá þeim tíma höfum við verið að mæta þeim kröfum sem löggjöfin setur og þróa starfshætti okkar með hliðsjón af þeim. Við höfum verið að leggja áherslu á að félagsmenn TFÍ setji sér persónuverndarstefnu sem taki á vinnslu persónuupplýsinga sem varða meðal annars þjónustuþega og starfsmenn sem starfa á tannlæknastofunum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Persónuverndar (sjá hnapp).
Þó okkur kunni að finnast það að persónuverndarlöggjöfin hafi þróast ört hefur hún ekki fylgt öllum breytingum sem hafa átt sér stað utan landsteinanna. Helsta breytingin hér á landi sem við höfum séð kom til með reglum nr. 50/2023 um rafræna vöktun sem Persónuvernd setti. Þeir félagsmenn sem ekki hafa lesið þær reglur eru eindregið hvattir til þess að gefa sér tíma til þess, enda dugar einn kaffibolli til.
Það er ánægjulegt að sjá félagsmenn taka þessum málum föstum tökum. Að því sögðu þá viljum hvetja þá sem þarfnast frekari leiðbeininga við að koma persónuverndarmálum í sem best horf að vera í virkum samskiptum við okkur þangað til að því markmiði er náð.
Til að auðvelda félagsmönnum vinnuna við að uppfylla persónverndarlögin á tannlæknastofum, þá lét TFÍ á sínum tíma, útbúa gátlista og vinnuskjöl sem hver og einn gat aðlagað að rekstri sínum. Við höfum nú látið yfirfara skjölin með tilliti til breytinga á lögum og biðjum ykkur að gera hið sama.

Sniðmát fyrir tannlæknastofur
Til upprifjunar þá mælum við með að skoða kynninguna og gátlistann fyrst áður en farið er í vinnuna sjálfa. Einnig er ráðlagt að vinna skjölin í þeirri röð sem þau koma fyrir:
- GÁTLISTI
- Listinn skiptist í tvo hluta. Í almennahlutanum er talinn upp tilgangur með nýju persónuverndarlögunum, hvað er óbreytt og helstu áhersluatriði. Seinnihlutinn er gátlisti sem þú getur unnið getur unnið eftir skref fyrir skref og hakað atriðin þegar þeim er uppfyllt.
- VINNSLUSKRÁ
- Öll fyrirtæki þurfa að gefa skýra mynd af þeim gögnum sem þau afla, hver hefur aðgang að þeim og hve lengi þau eru geymd. Við erum búin að útbúa vinnsluskrá fyrir dæmigerða tannlæknastofu og nú er þitt verkefni að yfirfara þinn rekstur og bæta inn og eyða út úr reitunum og aðlaga skránna að þinni starfsemi.
- PERSÓNUVERNDARSTEFNA
- Hér getur þú aðlagað og sniðið persónuverndarstefnu að þinni starfsemi. Stefnuna þarft þú að hafa sýnilega og aðgengilega fyrir almenning. Ef þú ert með heimasíðu þá getur þú vísað í hana þar. Í skjalinu er að finna texta sem þú getur sett á heimasíðuna með link á stefnuna. Ef heimasíða er ekki fyrir hendi þá er hægt að hafa hana sýnilega á biðstofunni. Eins og áður þá er þitt verkefni að breyta, fylla inn eða eyða texta í hornklofa og aðlaga textann að rekstri tannlæknastofu þinnar. ATH. textinn með gráa letrinu til minnis fyrir þig og á ekki heima í stefnunni sjálfri, það sama á við glósurnar neðst á síðunni. Einnig er að finna kaflan „Flutningur til annara landa“. Þetta á eingöngu við ef þú ert að senda persónuupplýsingar erlendis að staðaldri.
- VINNSLUSAMNINGUR
- Öll fyrirtæki í rekstri þurfa að gera vinnslusamninga við þriðja aðila t.d. þjónustuaðila tölvukerfis. Þú getur notað þetta form sem grunn að samningi við þína þjónustuaðila og fyllt inn eða eytt út úr hornklofanum þar sem á við – byggt á gátlistanum og vinnsluskránni. Margir þjónustuaðilar eru með sinn eigin samning og þá er sjálfsagt að nota hann.
Með því að ljúka vinnu sem ofangreind skjöl gera kröfu um þá ættir þú að vera kominn á góðan stað með að uppfylla lög varðandi persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
- Öll fyrirtæki í rekstri þurfa að gera vinnslusamninga við þriðja aðila t.d. þjónustuaðila tölvukerfis. Þú getur notað þetta form sem grunn að samningi við þína þjónustuaðila og fyllt inn eða eytt út úr hornklofanum þar sem á við – byggt á gátlistanum og vinnsluskránni. Margir þjónustuaðilar eru með sinn eigin samning og þá er sjálfsagt að nota hann.
- PERSÓNUUPPLÝSINGAR STARFSFÓLKS
- Nýtt skjal hefur bæst við en það er vinnsla á persónuupplýsingum starfsfólks Eins og hin skjölin þá getur þú notað þetta form sem grunn að samningi við starfsmenn þína og fyllt inn eða eytt út úr hornklofanum þar sem á við.
Kynning
Nýju persónuverndarlögin voru kynnt félagsmönnum TFÍ á félagsfundi í júní 2018 og fyrir starfsfólki tannlæknastofa á ársþingi 2018.
Við minnum á að ekki er leyfilegt að senda persónurekjanleg gögn, myndir eða upplýsingar með tölvupósti. Meðfylgjandi eru leiðbeiningar um dulkóðun gagna sem félagsmönnum TFÍ er frjálst að nota.
